muhahaha
12.05.2007 22:16:12 / ormur

RÚV SÖKKAR FEITT

Lélegt að skipta yfir í fyrstu tölur kosninga áður en söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva var búin. Það hefði ekki sakað neitt að bíða með það í fimm til tíu mínútur. HUMF


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 23:08:08 / ormur

Gleðilegt nýtt ár

Gleðilegt nýtt ár allir saman og takk fyrir það gamla (svona fyrir ykkur sem þekkið mig!). Ég var mjög andlaus í jólaundirbúningnum í ár og gleymdi meira að segja að senda þessi 3 jólakort sem ég þó lufsaðist til að skrifa... oh well það koma önnur jól eftir þessi! Ég var aðalega í rólegheitum og hvíld, var gjörsamlega búin á því eftir síðustu önn :$ En er búin að vera mjög dugleg að slappa af og hlaða battríin þannig að mæti galvösk á bókasafnið á morgun og byrja á undirbúningsvinnu lokaritgerðar....:haha: um bara farið að hlakka til að byrja aftur....


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 14:57:54 / ormur

Kæri Sáli...

Kæri sáli ....

Nú er svo mál með veksti að þetta gengur ekki lengur, konan mín er farin að
tuldra ofan í bringu ásamt því að hóta öllum sem nefna hópvinnu á nafn
líkamsmeiðingum.
Í dag tók svo steininn út þegar hún lagði leið sína í þekkta
byggingarvöruverslun og keypti sér skó með stáltá, ég heyrði ekki betur en
að hún væri eitthvað að muldra um að sína þessum lúðum! Er ég nú orðin
töluvert áhyggjufullur....
Konan er nefnilega horfin, í nýju skónum, með tippex brúsa og rauðan penna
að vopni, mér leist ekki alveg á hve skrítin hún var til augnana þegar hún
lagði af stað í skólann...
Kæri sáli ég vona svo sannarlega að þú getir ráðlagt mér eitthvað í þessum
efnum, konan mín er afar ljúf og góð, svona almennt. Ég get ekki ímyndað mér
lífið án hennar, hún kaupir jú öll fötin á mig og segir mér í hverju ég á að
vera, hvernig á ég að geta ákveðið slíkt sjálfur, ó mig auman. Geturðu
kannski gert eitthvað fyrir konuna mína, gefið henni gleðipillu, eða jafnvel
það sem enn betra væri vottorð í hópavinnu ??

Virðingarfyllst,

Yðar einlægi "Aumingja maðurinn"



Aumingja þú! 

Í svo átakanlegu tilfelli sem þú lýsir, er aðeins um eitt að
ræða. ÁKVEÐNI. Þú ferð þannig að því að : í fyrsta lagi- reyndu að svæfa
konuna, þegar og ef hún skilar sér heim. Hafir þú ekki pillur til að lauma
ofaní hana mæli ég með smíðahamri, buffhamri eða sleggju.Ef þú velur
sleggjuna, mundu þá að vefja þykku handklæði um hana fyrir notkun. Annars
gætirðu lent í enn verri málum en  þeim sem þú ert í núna. Ennfremur skaltu
forðast að nota orðið HÓP í nokkru samhengi. Slíkt gæti valdið geðröskum hjá
hinni ljúflyndustu persónu, hvað þá einstaklingi sem orðið hefur fyrir
hópvinnugeðröskun, sem mér skilst að sé vandamál konu þinnar.
Takist þér að svæfa hana í svona 24 klst. mæli ég með hressilegum kynmökum á
eftir. Slíkt örvar endorfínframliðslu heilans, og er í alla staði jákvætt.
Mundu þó að hópsex kemur tæpast til greina í þessu tilfelli. Að lokum skaltu
freista þess að ná frá henni stál-táarskóm og öðrum viðsjárverðum hlutum og
koma þeim í Sorpu eða annan sambærilegan stað, t.d. til Víkingasveitar
lögreglunnar eða Félags einstæðra foreldra.
Með bestu óskum, 

þinn einlægur Sáli.


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 00:27:54 / ormur

Lukkubrandari. Bara að lesa þennan brandara færir lukku


Einn daginn fór gömul kona með fulla tösku af peningum
í banka.

Við afgreiðsluborðið sagði hún að hún vildi bara tala
við bankastjórann, um að opna sparireikning:
"þetta eru miklir peningar, þú skilur".

Eftir langar rökræður var konunni fylgt til
bankastjórans
-viðskiptavinurinn er konungur!!!

Bankastjórinn spurði um upphæðina sem konan vildi
leggja inn. Hún sagði honum að það væri um 50 milljón
evrur að ræða. Hún tæmdi töskuna fyrir hann. Auðvitað
varð bankastjórinn forvitin um hvaðan allir þessir
peningar kæmu.

"Kæra frú, það kemur mér á óvart hversu mikla peninga
þú hefur- hvernig stendur á því?"
Gamla konan svaraði honum "Mjög einfalt. Ég veðja!"

"Veðjar?" spurði bankastjórinn, "hvers konar veðmál?"

Gamla konan svaraði:´´Jah, allt mögulegt. Til dæmis,
veðja ég við þig, uppá 25.000 evrur að eistun á þér
séu ferköntuð!´

Bankastjórinn fór að hlæja og sagði: ´´Það er
fáránlegt! Á þennan hátt getur þú aldrei unnið svona
mikla peninga.´´

Jæja, eins og ég sagði áðan, þá er það á þennan hátt
sem ég vinn mér inn peningana. Ert þú tilbúin til að
taka þátt í þessu veðmáli?´

´Auðvitað!´´ svaraði hann. Það voru jú miklir peningar
í húfi.

´Ég veðja semsagt 25.000 evrum uppá að eistun á mér
séu ekki ferköntuð.´

Gamla konan svaraði:´´ Samþykkt, en þar sem þetta eru
miklir peningar, má ég þá koma við á morgun, kl 10:00
með lögfræðinginn minn, svo að við höfum líka vitni?´

´Auðvitað!´´ Bankastjórinn samþykkti.

Um nóttina var bankastjórinn frekar taugaóstyrkur og
skoðaði ýtarlega á sér eistun, tímunum saman. Fyrst
öðrumegin svo hinumegin. Að lokum með hjálp einfalds
prófs varð hann 100% öruggur. Hann myndi vinna
veðmálið, alveg viss!

Morguninn eftir kom gamla konan, kl 10:00 í bankann
með lögfræðinginn sinn. Hún kynnti mennina tvo hvor
fyrir öðrum og endurtók veðmálið uppá 25.000 evrur.

Og uppá nýtt samþykkti bankastjórinn veðmálið að
eistun á sér væru ekki ferköntuð. Eftir það bað hún
hann um að taka niður um sig buxurnar til að skoða
málið (punginn) einu sinni.
Bankastjórinn tók niður um sig buxurnar, gamla konan
kom nær, skoðaði punginn í rólegheitum og spurði hann
varlega hvort hún mætti koma við eistun.

Mundu eftir að það eru miklir peningar í húfi.

´O.K.´´ sagði bankastjórinn öruggur. ´Þetta er 25.000
evra virði og ég skil vel að þú viljir vera viss.

Þá kom konan enn nær og hélt eistum mannsins í lófa
sér.

Þá tók bankastjórinn eftir því að lögfræðingurinn var
farinn að berja hausnum á sér við vegginn.


Bankastjórinn spurði konuna:
"Hvað er að lögfræðingnum þínum?"

Hún svaraði: ´´ Ekkert, ég veðjaði við hann, uppá
100.000 evrur að ég skildi í dag kl 10:00 hafa eistu á
bankastjóra í hendi mér.



» 0 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 12:37:39 / ormur

Við búum í kassa....

eða svona næstum því ....

Fluttningar fóru vel fram og þökkum við hér með kærlega fyrir alla aðstoðina :D

Við verðum bráðum komin upp úr kössunum og aldrei að vita hvort ekki verði bara öllu slegið upp í kæruleysi og boðið upp á gulrætur og vatn :) Annars mæli með að allir skoði; www.sana.is og fari svo að safna. Þetta virkar frekar flott :D

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 17:50:40 / ormur

FLUTTNINGAR....aðstoð óskast :) ......

..........auglýsi hér með eftir ofvirkri heimillishjálp :$

... og massavís af aðstoð/hjálp við að pakka - bera - þrífa og allt hitt stússið sem fylgir búferlafluttningum, er að vísu ekki að flytja mjög langt :haha: en er enn bilað 8|

Amm allir að koama í fluttninga..... um mánaðarmótin og kannski verður gulrót og vatn í boði (ég er orðin svo heilsusamleg að það er úti með pítsu og bjór...)

:haha:

-E.


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 01:32:52 / ormur

Það hefur ýmislegt gerst hjá mér undanfarna mánuði.

 

Eftirfarandi verður að teljast til hápunkta;

  • Ég kláraði 2 árið mitt í KHÍ með sóma og náði persónulegum markmiðum um bætta meðaleinkunn. MONNT :D LOL
  • Fékk sumarvinnu á yndiðslegum litlum 3ja deilda leikskóla.;)
  • Ég fór með Dóttur minni og Dátanum mínum í tveggja vikna flakk um Danaveldi í tilefni að giftingu littlu systur minnar. Frekar frábær ferð. Fórum í Tivoli, Zoo og lékum túrista og að sjálfsögðu mættum við í brúðkaupið. Dóttir mín var blómastúlka J Mega stollt af skottunni minni.:haha:
  • Lenti í bílslysi 15 júlí síðastliðinn. Það var sko keyrt aftan á skriðdrekann minn 8| og núna er ég bilað :cry:

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 00:53:08 / ormur

Long time no see

"Úgg"

það er orðið æði langt um liðið frá því að eitthvað nýtt kom fram á þessari blessuðu síðu!! Amm fékk góðfúslega ábendingu um að eitthvað nýtt mætti fara að dúkka upp og hef umsvifalaust tekið það til ígrundunar og eflaust mun eitthvað áhugavert birtast hér á næstu dögum!


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.01.2006 20:58:53 / ormur

oh jæja farin að herma eftir bekkjarfélögunum....

.....Nú er lag að sjá hvort að einhver sem kíkir hérna inn þekkir mig. Ég tók þetta af síðunni hennar Láru, hún náði þessu af síðunni hennar Brynju....hummm þetta hefur greinilega verið vinsælt víða...spurningar 4 og 5 voru skildar útundan á báðum vígstöðvum þar sem þeim stöllum þóttu þær kjánalegar og ég trúi þeim alveg þó svo að ég verði að játa vanþekkingu mína á innihaldi spurninga 4 og 5..

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?

15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?
Bónusspurning:
16. hvenær áttu afmæli og hvað ár komstu í heiminn??


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 12:38:33 / ormur

Gleðilegt nýtt ár... þótt í seinna falli sé..

Hulló :D

Jamm ormurinn er sem sagt enn á meðal manna!! Það hefur bara verið geðveikt að gera á öllum vígstöðvum, skólinn að gera heiðarlega tilraun til að breyta manni í hælismat og mamma veiktist (er á bataveg). Skólinn er enn að gera heiðarlega tilraun til að breyta nemendum í hælismat, en tja mér leiðist ekki á meðan ég hef brjálað að gera :) Það nýjasta er að ég mæti í skólann á sunnudögum :) reyndar í tíma tengda leikbrúðum og leikbrúðugerð, og það er frekar spennandi. Ég náði að vera lúðalegur nörd þessa síðustu önn líka og kláraði öll fögin mín og er enn þá með fyrstu einkunn í meðaleinkunn :), munar litlu á að ég næði ágætiseinkunn aftur, þannig að nú hef ég eitthvað til að stefna á þessa önn, hækka einkunnir, ná meðaltalinu upp í ágætis einkunn og taka síðan yfir Ísland að námi loknu :) Anyhow, þetta er smá útúrdúr.... Gleðilegt ár allir saman :)

Eva Ormur


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.10.2005 18:28:18 / ormur

One Woman's Tale of Woe


>All hair removal methods have tricked women with their promises of easy, 
>painless removal - The epilady, scissors, razors, Nair and now...the wax. 
>My night began as any other normal weeknight. Come home, fix dinner, play 
>with the kids. 
>I then had the thought that would ring painfully in my mind for the next >few 
>hours "Maybe 
>I should pull the waxing kit out of the medicine cabinet." So I headed to 
>the site of my demise the bathroom. 

>It was one of those "cold wax" kit! s. No melting a clump of hot wax, you >just 
>rub the strips together in your hand, they get warm and you peel them apart 
>and press them to your leg (or wherever else) and you pull the hair right 
>off. No muss, no fuss. How hard can it be? 
>I mean, I'm not a genius, but I am mechanically inclined enough tofigure 
>this out. (YA THINK!?!) 

>So I pull one of the thin strips out. Its two strips facing each other >stuck 
>together. 
>Instead of rubbing them together, my genius kicks in so I get out the hair 
>dryer and heat it to 1000 degrees. ("Cold wax," 
>yeah...right!) I lay the strip across my thigh. Hold the skin around it 
>tight and pull. It works! 
>OK, so it wasn't the best feeling, but it wasn't too bad. I can do this! 
>Hair removal no longer eludes me! I am She-rah, fighter of all wayward body >hair and maker of smooth skin extraordinaire. 
>With my next wax strip I move north. After checking on the kids, I sneak 
>back into the bathroom, for the ultimate hair fighting championship. 
>I drop my panties and place one foot on the toilet. Using the same 
>procedure, I apply the was strip across the right side of my bikini line, 
>covering the right half of my vagina and stretching down to the inside of 
>my butt cheek (Yes, it was a long strip) I inhale deeply and brace 
>myself....RRRRIIIPPP!!!! 

>I'm blind!!! Blinded from pain!!!!....OH MY GOD!!!!!!!!! 

>Vision returning, I notice that I've only managed to pull off half the 
>strip. 
>CRAP!!! Another deep breath and RRIIPP!! Everything is swirly and spotted. 
>I think I may pass out...must stay conscious...Do I hear crashing drums??? 
>Breathe, breathe...OK, back to normal. 

>I want to ! see my trophy - a wax covered strip, the one that has caused me 
>so much pain, with my hairy pelt sticking to it. I want to revel in the 
>glory that is my triumph over body hair. 
>I hold up the strip! 
>There's no hair on it. Where is the hair??? WHERE IS THE WAX??? 
>Slowly I ease my head down, foot still perched on the toilet. 
>I see the hair. 
>The hair that should be on the strip. 
>touch. 
>I am touching wax. 
>CRAP! I run my fingers over the most sensitive part of my body, which is >now 
>covered in cold wax and matted hair. 
>Then I make the next BIG mistake...remember my foot is still propped up on 
>the toilet? 
>I know I need to do something. So I put my foot down. 
>DAMN!!!!!!!! I hear the slamming of a cell door. 
>Vagina? Sealed shut! 
>Butt?? Sealed shut! 
>I! penguin walk around the bathroom trying to figure out what to do and >think 
>to myself "Please don't let me get the urge to poop. My head may pop off!" 
>What can I do to melt the wax? 
>Hot water!! 
>Hot water melts wax!! 
>I'll run the hottest water I can stand into the bathtub, get in, immerse >the 
>wax-covered bits and the wax should melt and I can gently wipe it off, 
>right??? 
>*WRONG!!!!!!!* 
>I get in the tub - the water is slightly hotter than that used to torture 
>prisoners of war or sterilize surgical equipment - I sit. 
>Now, the only thing worse than having your nether regions glued together, 
>is having them glued together and then glued to the bottom of the tub...in 
>scalding hot water. 
>Which, by the way, doesn't melt cold wax. 
>So, now I'm stuck to the bottom of the tub as though I had cement-epoxied 
>myself to the porcelain!! 
>! ;God bless the man who had convinced me a few months ago to have a phone put 
>in the bathroom!!!!! 
>I call my friend, thinking surely she has waxed before and has some secret 
>of how to get me undone. It's a very good conversation starter 

>"So,........ my butt and who-ha are glued together to the bottom of the 
>tub!" 

>There is a slight pause. She doesn't know any secret tricks for removal but 
>she does try to hide her laughter from me. 
>She wants to know exactly where the wax is located, "Are we talking cheeks 
>or hole or who-ha?" 

>She's laughing out loud by now...I can hear her. I give her the rundown and 
>she suggests I call the number on the side of the box. 
>YEAH!!!!! Right!! I should be the joke of someone else's night. 
>While we go through various solutions. I resort to scr! aping the wax off >with 
>a razor. 
>Nothing feels better then to have your girlie goodies covered in hot wax, 
>glued shut, stuck to the tub in super hot water and then dry-shaving the 
>sticky wax off!! 
>By now the brain is not working, dignity has taken a major hike and I'm 
>pretty sure I'm going to need Post-Traumatic Stress counseling for this 
>event. 

>My friend is still talking with me when I finally see my saving 
>grace....the lotion they give you to remove the excess wax. What do I >really 
>have to lose at this point? 
>I rub some on and OH MY GOD!!!!!!! 

>The scream probably woke the kids and scared the dickens out of my friend. 
>It's sooo painful, l but I really don't care. "IT WORKS!! It works!!" 
>I get a hearty congratulation from my friend and she hangs up. 

>I successfully remove the remainder of the wax and then! notice to my 
>grief and despair....THE HAIR IS STILL THERE.......ALL OF IT!!!!!!!!!!!!!!. 

>So I recklessly shave it off. Heck, I'm numb by now. Nothing hurts. 
>I could have amputated my own leg at this point. 

>Next week I'm going to try hair color.......... 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.10.2005 18:19:50 / ormur

Hvernig veit maður hverjum maður á að giftast?


Nokkur bandarísk börn voru spurð spurninga um hjónabandið og samskipti
kynjanna. Hér koma nokkur gullkorn.


HVERNIG VEIT MAÐUR HVERJUM MAÐUR Á AÐ GIFTAST?


"Maður verður að finna einhvern sem hefur gaman af því sama og maður
sjálfur. Ef maður til dæmis hefur gaman af íþróttum verður hún að hafa
gaman af því að þú hafir gaman af þeim og sjá um snakkið og dýfuna."
Alan, 10 ára.


"Það ákveður það enginn áður en hann verður fullorðinn hverjum hann
ætlar að giftast. Guð ákveður það allt löngu áður og maður kemst ekki að því fyrr en það er orðið of seint."
Kirsten, 10 ára.


Á HVAÐA ALDRI ER BEST AÐ GANGA Í HJÓNABAND?


"Það er best að vera 23 ára því þá er fólkið búið að þekkjast í heila eilífð."
Camille, 10 ára.


"Maður þarf ekki að vera á neinum sérstökum aldri, maður þarf bara að
vera bjáni."
Freddie, 6 ára.


HVERNIG SÉR MAÐUR HVORT ÓKUNNUGT FÓLK SÉ GIFT?


"Maður verður bara giska út frá því hvort manni sýnist þau vera að æpa á sömu krakkana."
Derrick, 8 ára.


HVAÐ EIGA FORELDRAR ÞÍNIR SAMEIGINLEGT?


"Bæði vilja ekki eignast fleiri börn."
Lori, 8 ára.


HVAÐ GERIR FÓLK Á STEFNUMÓTUM?

"Á stefnumótum á að vera gaman því fólkið er að kynnast hvort öðru.
Meira að segja strákar geta haft eitthvað að segja ef maður hlustar nógu lengi.
Lynnette, 8 ára.


"Á fyrsta stefnumótinu lýgur fólk bara hvort að öðru og það er yfirleitt nóg til að það hafi áhuga á að hittast aftur."
Martin, 10 ára.


HVAÐ MYNDIRÐU GERA EF ÞÚ FÆRIR Á STEFNUMÓT SEM ENDAÐI ILLA?


"Ég myndi hlaupa heim og þykjast vera dauður. Daginn eftir myndi ég hringja í öll blöðin og láta þau skrifa um mig í andlátsfréttunum."
Craig, 9 ára.


HVENÆR ER ÓHÆTT AÐ KYSSA EINHVERN?


"Ef hann er ríkur."
Pam, 7 ára.

"Það er bannað með lögum ef maður er ekki orðinn átján ára og það er
ekki sniðugt að lenda í einhverju veseni út af því."
Curt, 7 ára.


"Reglan er sú að ef maður kyssir einhvern á maður að giftast honum og eignast með honum börn. Þannig á maður að gera."
Howard, 8 ára


HVORT ER BETRA AÐ VERA EINHLEYP(UR) EÐA Í HJÓNABANDI?


"Það er betra fyrir stelpur að vera einhleypar en það er verra fyrir stráka. Það verður einhver að taka til eftir stráka."
Anita, 9 ára.


HVERNIG VÆRI HEIMURINN EF ENGINN GIFTIST?

"Það væri alla vega erfitt að útskýra alla þessa krakka."
Kelvin, 8 ára.


HVERNIG Á AÐ VIÐHALDA ÁSTINNI Í HJÓNABANDINU?


"Maður á að segja konunni sinni að hún sé falleg, jafnvel þótt hún
líti út eins og vörubíll."
Ricky, 10 ára.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.09.2005 22:59:29 / ormur

Coldplay í Minneapolis :)

Núna er ég sem sagt komin heim frá Minneapolis, ferðin var frábær!!:haha: Við komum til USA laugardagskvöldið 17 sept og komum heim til klakanns fimmtudagsmorguninn 22 sept. Við brölluðum margt í ferðinni fyrir utan að sjálfsögðu aðalatriðið sem voru Coldplay tónleikarnir á þriðjudagskvöldinu, þeir voru tær snild. :haha:Annars gerðum við vinkona mín allskonar skemmtilega hluti, lékum túrista og fórum í hestakerruferð um miðborgina, skoðuðum furðulegan gay bar þar sem voru margir barir á 2 hæðum í sama húsinu, þar innandyra var mjög áhugavert apparat, svona einsog er í smáralindinni til að krækja í bangsa, nema það voru sko engir bangsar í þessari ....:klikk:

Við skoðuðum líka áhugaverða “dónabúð” öðru nafni sex world sem var búð á tveimur hæðum sem seldi hin ýmsu hjálpartæki ástarlífsins... held þessi búð hafi verið á stærð við tja.. Hagkaup ? Það var áhugavert...8) Við gerðum líka ýmislegt annað fundum okkur dásamlegan Írskan pöbb Localin í miðbænum og sötruðum þar bjór í hitanum ( 25-35 stiga hiti), gengum bókstaflega af okkur fæturnar, mér er enn illt í þeim! Fórum að sjálfsögðu í Mall of America og versluðum ásamt því að fara í Camp Snopy, láta taka myndir af okkur í miðalda búningum, og fórum í frábært sædýra safn þar sem er gengið í gegnum göng og fiskarnir synda yfir og allt um kring!! :haha:Við borguðum smá aukalega fyrir að fá að fóðra hákarlana 8| ásamt back stage tour um sædýra safnið, þar sáum við m.a huge fisk frá Ástralíu sem var í laginu eins og gullfiskur en alveg skær blár með mynstri og ekkert smá stór. Heyrðum frægðar sögur af kolkrabbanum þeirra sem hafði nýlega látist, kolkrabbar virðast vera frekar gáfuð dýr...jamm en eftir alla verslunarleiðangrana þá endaði ég á því að kaupa mér ferðatösku sett (lítið) til að komast heim með þetta allt... og var að sjálfsögðu með hjartað í buxunum á flugvellinum vegna væntanlegrar yfirvigtar, sem var svo blessunarlega engin.  Flugið heim var frekar skrautlegt,  flugvélinni seinkaði og þegar hún var loksins komin þá var komið 5 stigs þrumuveður og fellibylur (hurricane) með 65 mílna vindhraða... við vorum látin fara um borð í vélina í hvelli og rétt náðist að koma öllum um borð áður en flugvellinum var lokað. Síðan þurftum við að bíða í vélinni í rúma 2 klst við flugstöðina áður en tekið var á loft, sem var frekar skrautlegt... þurftum að fljúga í gegnum þrumuskýin og vélin hristist og hentist upp og niður og vængirnir voru bláir af eldingum...8| mér var ekki skemmt, verandi flughrædd fyrir og sé fyrir mér að ég muni ekki reyna að fara úr landi á næstunni, nema eftil vill með bát!! *LOL*


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.09.2005 00:30:34 / ormur

Brjálæðið.....

........er byrjað!!! Jamm ég er sem sagt byrjuð á öðru ári í kennó..... og núna á fyrstu tveimur vikunum eða svo er búið að setja okkur fyrir 17 verkefni (sem á að skila á næstu 14 vikunum) jamm nóg að gera J mér leiðist allavegana ekki á meðan. Ég var ótrúlega heppin núna um dagin, svo er mál með veksti að ég tók þátt í einhverjum leik á heimasíðu bankans míns fyrir x vikum og ég vann :D merkilegt ekki satt J Ég vann sem sagt ferð fyrir tvo til Minneapolis á Coldplay tónleika J Við bæklingurinn förum á laugardaginn og komum ekki heim fyrr en á fimmtudagsmorgun..... tökum eflaust stefnuna á Mall of America og Dýragarðin í Minneapolis..... jamm þetta er bara frekar frábært.

Annars hefur svo sem tja ekki svo margt verið að gerast....                                                  

.... vann í allt sumar á frábærum littlum þriggja deilda leikskóla, það verður að segjast að ég er hrifnari af minni leikskólum....

....Dátinn minn er búin að skipta yfir í öryggisvarðar búning og sestur að á klakanum og það flokkast sem afar jákvætt og gott....

..... dóttir mín er komin í annan bekk í skólanum.... rosalega líður tímin hratt....

amm látum þetta duga í bili.... er hvort eð er bara andlaus, andvaka og leiðinleg.

 

 



-ormur


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.07.2005 19:25:56 / ormur

VELFERÐARRÍKIÐ ÍSLAND ?

1 júlí 2005

 

 



 

 



Kæri viðtakandi.

 

 



Ég ætla að deila méð þér smá sannri sögu úr velferðarkerfinu á Íslandi í dag.

 

 



Svo er mál með veksti að vinkona mín sem er 55 ára gömul, einstæðingur og öryrki þurfti að fara í aðgerð á hægri axlarliði þann 20 júní síðastliðinn.

Ekki vildi betur til en svo að hún veikist daginn eftir aðgerðina og var ein heima, fárveik, með 40°c hita, uppköst og niðurgang.

Hún heldur þetta út fram að sunnudeginum 26 júní þegar hún fær lækni af læknavaktinni heim, hún er send með hraði á sjúkrahús þar sen hún var komin með hættulega mikið vökvatap.

Á sjúkrahúsinu er rannsakað hvað valdi og kemur í ljós að vinkona mín er með baktríusýkingu sem ég kann ekki að nefna, en orsakaðist af viðbrögðum hennar við fúkkalyfjunum sem hún var sett á eftir áður nefnda aðgerð á hægri öxl.

1-2 dögum eftir að þetta er komið fram og hún byrjuð á lyfjameðferð við þessu, kemur í ljós að hún er einnig með salmónellu sýkingu. Af þeim sökum er hún sett í einangrunn síðastliðinn fimmtudag 30 júní 2005.

Hún getur ekki fengið lyf við salmonellu sýkingunni þar sem þau og lyfin sem hún er á við hinni baktríusýkingunni vinna á móti hvoru öðru og þar af leiðandi verður hún að vinna á salmónellu sýkingunni sjálf.

Öllum að óvörum var þessi fárveika vinkona mín, án þess að til nokkurs kraftaverka bata kæmi, send heim í dag föstudaginn 1 júlí 2005. Henni var sagt að hún gæti verið í sóttkví heima, þar sem hún er jú enn smitandi. Það var ekki sótt um heimahjúkrun fyrir hana og veit ég ekki afhverju. Hún er einstæðingur og hefur skerta getu til að sinna um sig sjálf þar sem hún er ekki búin að jafna sig eftir aðgerðina á hægri öxl og er mjög máttfarin eftir veikindinn, hún má ekki fara út á meðal fólks og við hennar nánustu vinir sem viljum ekki að hún svelti erum að taka áhættuna á að smitast sjálf af salmónellu í hvert skipti sem við komum til hennar.

 

 



Ástæðan fyrir því að ég ákvað að deila þessari sögu með þér er einföld, það er ansi aumt velferðarkerfi sem sendir fárveikan einstæðing heim í sóttkví með enga aðstoð og engin ráð til að bjarga sér. En minnir hana á að biðja nú ekki fólk sem á börn eða gæti verið veikt fyrir um aðstoð þar sem að hún sé og verði í einhvern tíma smitandi.

 

 



Með von um að þetta vekji þig til umhugsunar um hvert velferðarkerfið á Íslandi stefnir og hvort það sé enn til staðar. Erum við kannski að verða eins og BNA að hver einstaklingur hefur rétt á bestu mögulegri heilbrigðisþjónustu, sem hann er borgunarmaður fyrir.

 

 



Virðingarfyllst,

Eva Rós Tómasdóttir.

 

 



evartoma@khi.is

evavillpost@hotmail.com

 

 




» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6